Reiðhestar

Sólsker frá Hauganesi IS1999165797

M: Lotta frá Húsey

F: Hreimur frá Brún IS1996165526
FM: Ósk frá Brún
FF: Dósent frá Brún

 


Sólsker er einn af höfðingjunum í hópnum. Hann er glæsilegur alhliða hestur sem grípur augað hvort sem er í reið eða úti í haga. Hann er nokkuð stór, kemur vel upp og hefur góðan fótaburð. Sólsker er flugrúmur á öllum gangi og hefur eigandinn, Valdimar, ekki lítið gaman af því að taka góðan skeiðsprett á honum.

Eldjárn frá Hauganesi IS2001165799

M: Nös frá Hauganesi
MF: Byr frá Akureyri IS1980160007

F: Hreimur frá Brún IS1996165526
FM: Ósk frá Brún
FF: Dósent frá Brún

 


Eldjárn er skemmtilegur reiðhestur sem hefur verið að sækja í sig veðrið. Hann hefur sterkan klárgang og er hágengur og reistur. Nýlega hefur verið byrjað að vinna í skeiðinu svo enn er ekki komið í ljós hvaða afköst verða þar en fyrstu merki lofa góðu.

Ósk frá Hauganesi IS1995265799

M: Nös frá Hauganesi
MF: Byr frá Akureyri IS1980160007

F: Glæsir frá Húsey IS1992157560
FM: Ljósbrá frá Húsey IS1983257016
FF: Snúður frá Húsey IS1988157563

 

Ósk er afskaplega léttbyggð og skemmitleg klárhryssa. Hún hefur svifmikið og gott brokk og gott tölt. Fótaburður er góður.

 

Glóð frá Hauganesi IS1999265799

M: Nös frá Hauganesi
MF: Byr frá Akureyri IS1980160007

F: Hreimur frá Brún IS1996165526
FM: Ósk frá Brún
FF: Dósent frá Brún


Glóð er ljúf og góð. Hún er frekar lítil og klárgeng. Hún er með flottar hreyfingar og er töltið sérstaklega glæsilegt. Hún er ein af þessum hestum sem tekið eftir í reið.

 

 Logi er einn af öldungunum í hópnum. Hann er mikill vinnuþjarkur og algjör höfðingi, yfir honum er mikil reisn og hvort sem hann er í reið eða úti í haga sést að þarna er höfðingi á ferð. Hann er með mjög góðan klárgang og hefur mikla yfirferð á ölllum gangi. Undanfarin á hefur brúkun á honum minnkað nokkuð en Logi er hestur sem alltaf er gaman að koma á bak á.

 

óðinn er einn af gömlu jöxlunum í stóðinu, orðinn tuttugu vetra gamall. Hann er sannkallaður vinnuþjarkur og hefur borið marga fjölskyldumeðlimi í hestaferðum hingað og þangað. Í seinni tíð hefur hann aðallega þjónað hlutverki barnahests og leyst það sem miklum sóma.
Baldur telst til þeirra gömlu, enda orðinn 20 vetra. Hann á þó nóg eftir enda feykilega duglegur hestur. Betri reið- og ferðahestar eru ekki á hveru strái. Hann er mjúkur á öllum gangi og er mikill töltari og fer einstaklega vel með mann. Hann er ótrúlega traustur og þess vegna hefur það oft komið sér vel að hafa hann í lengri ferðum.
 Sleipnir er góður hestur með allan gang, þó svo lítið sem ekkert hafi verið unnið í skeiðinu. Sleipnir hefur ekki verið mikið notaður undanfarin ár, bæði vegna meiðsla og fjarveru eiganda. Það hefur tvisvar sinnum sprungið illa á honum hófur, fyrst þegar hann var 5 vetra, og síðan aftur fyrir tveimur árum, sem við erum enn að kljást við. Og það má segja hans notkun í gegnum árin beri þess merki. Hann hefur þó mikla hæfileika og glæsilegt brokk. Allt bendir til að hann verði klár í vor og verður gaman að sjá hvað verðu úr honum.

 

<< Byrja < Fyrra 1 2 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL