| Um okkur |
|
Á Hauganesi við vestanverðan Eyjafjörð hefur Valdimar Kjartasson og fjölskylda hans stundað hestamennsku í fjölmörg ár. Upphafið má rekja til þess þegar Valdimar keypti sinn fyrsta hest árið 1969. Síðan þá hefur honum tekist að smita vel flesta fjölskyldumeðlimi af hestabakteríunni og er nú orðinn nokkuð stór hópur í fjölskyldunni sem gerir hestamennsku sína út frá Hauganesi.
Fjölskyldan leigir u.þ.b. helming jarðarinnar Selá, sem er í eigu ríkisins, og nýtir hana til sláttu og beytar. Þar að auku leigir fjölskyldan land af Dalvíkurbyggð. Haustið 2007 var hesthúsið tekið í gegn og básar teknið og stíur settar í staðinn. Í húsinu eru nú fimm rúmgóðar einshestastíur, ein tveggjahesta og svo ein lítil einshestastía. Er þetta algjör bylting frá því sem var þegar nær eingöngu voru básar í húsinu. Eins og oftast áður var það Valdimar sjálfur sem bar hitan og þungan af framkvæmdunum en naut við þær aðstoðar Bjarna sonar síns og Kristins Inga Valssonar dóttursonar síns. Skammt frá Hauganesi er Þorvaldsdalur, eyðidalur sem kjörinn er til útreiða yfir sumartímann. Þangað er mikið riðið yfir sumarið en annars er fjölbreyttni í reiðleiðum ekki mikil. Sárlega vantar reiðvegi um Árskógsströnd til að auðvelda þeim ferð sem vilja ferðast hér um ríðandi og framtíðardraumurinn er að tengja hestamenn í Dalvíkurbyggð með reiðvegum við hestamenn innar við fjörðinn. Þetta mundi auðvelda mönnum gríðarlega mikið ferðalög yfir sumarið og örugglega auka straum hópa í hestaferðum hér um svæðið.
Staðsetning
Hauganes er lítið þorp staðsett á Árskógsströnd við utanverðan Eyjafjörð að vestan, í 36 km fjarlægt frá Akureyri, höfuðstað Norðurlands. Þetta svæði er á margan hátt ákjósanlegt fyrir hestamenn, stutt er í Svarfaðardal þar sem öll keppisaðstaða er eins og best verður á kosið og enn styttra í Þorvaldsdal sem er fallegur óbyggður dalur. Í honum er nokkrar jarðir sem allar fóru í eyði snemma á síðustu öld. Á Hauganesi er starfrækt hvalaskoðun á sumrin og er þorpið vel þess virði að heimsækja það. |

10C 
Danska tenniskonan Caroline Wozniacki átti ekki í erfiðleikum með að sigra Mariu Sharapovu frá Rússlandi í Opna bandaríska meistaramótinu í gærkvöldi og tryggja sér þannig sæti í 8 manna úrslitum.
Steinn Jóhannsson setti í gær Íslandsmet í þríþraut, eða járnkarli eins og íþróttagreinin er stundum nefnd. Steinn tók þátt í keppni í Köln í Þýskalandi og lauk þrautinni á 9 stundum, 24 mínútum og 46 sekúndum.
Dominika Cibulkova frá Slóvakíu tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis þegar hún bar sigurorð af Rússanum Svetlana Kuznetsova í tveimur settum, 7:5 og 7:6. 
