| Námskeið hjá Mette Mannseth |
| Skrifað af Bjarni Valdimarsson |
| Föstudagur, 15 Janúar 2010 22:09 |
|
Já þá erum við félagarnir hérna á Nesinu byrjaðir á námskeiði hjá Mette Mannseth. Við fórum í fyrsta skipti í dag og held ég að okkur lítist báðum bara bærilega á þetta. Hjá mér var þetta nokkuð kapphlaup við tímann en með þrotlausri vinnu Þóris Áskelssonar sjúkraþjálfara tókst mér að komast í hnakkinn. Við fáum að leggja línurnar nokkuð sjálfir á þessu námskeiði og Mette aðstoðar okkur með það sem við viljum helst leggja áherslu á. Dandi fór með Nótu og fékk ábendingar um aðferðir við gangsetningu en ég fór með Eldjárn og var aðallega með pælingar í sambandi við form og burð. Næsta skipti er eftir hálfan mánuð og verðum við vonandi komnir eitthvað lengra áleiðist þá. |

9C 
Danska tenniskonan Caroline Wozniacki átti ekki í erfiðleikum með að sigra Mariu Sharapovu frá Rússlandi í Opna bandaríska meistaramótinu í gærkvöldi og tryggja sér þannig sæti í 8 manna úrslitum.
Steinn Jóhannsson setti í gær Íslandsmet í þríþraut, eða járnkarli eins og íþróttagreinin er stundum nefnd. Steinn tók þátt í keppni í Köln í Þýskalandi og lauk þrautinni á 9 stundum, 24 mínútum og 46 sekúndum.
Dominika Cibulkova frá Slóvakíu tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis þegar hún bar sigurorð af Rússanum Svetlana Kuznetsova í tveimur settum, 7:5 og 7:6.