Rólegt á nesinu
Skrifað af Kristinn Ingi Valsson   
Þriðjudagur, 17 Nóvember 2009 20:07

Það hefur ekki farið mikið fyrir fréttum hér á síðunni undanfarið eins og allra glöggustu menn hafa tekið eftir. Það er þó eitt og annað sem á daga okkar hefur drifið.
Um síðustu helgi gáfum við öllum hestum ormalyf og klipptum hófa á tryppum og folaldsmerunum. Í leiðinni fengum við Zoffa á Hrafnsstöðum til að örmerkja folöldin frá því í sumar. Þar var gríðarleg dramatík í nafnavali á öðru folaldinu en það náðist ekki sátt um nafnið fyrr en (eftir að) það þurfti að gefa það upp, og varð Komma fyrir valinu. Hitt fékk svo nafnið Glanni.
Þann 5. nóvember renndum við með Nótu í tamningu á Þúfur til Mette og Gísla. Þar gengur allt ljómandi vel og líst þeim ljómandi vel á hana.
 
Athugasemdir (1)
scZXrOdOOxeCZoc
1 Þriðjudagur, 09 Febrúar 2010 08:27
KYwfSRCxv
s6dMEE ayremnsyfssp, [url=http://fzxlkdknupxi.com/]fzxlkdknupxi[/url], [link=http://yjjrchttlqja.com/]yjjrchttlqja[/link], http://eachiukdnchg.com/

Skráðu athugasemd við fréttina

Nafn þitt:
Vefsíða þín:
Titill:
Comment: