|
Skrifað af Kristinn Ingi Valsson
|
|
Fimmtudagur, 10 September 2009 19:39 |
|
Jæja þá er sumarið búið og haustið tekið við, með öllu því sem haustinu fylgir, rigning, heyskapur og réttir.
Það hefur ýmislegt gerst síðan síðasta færsla var skrifuð. Menn voru mjög duglegir að ríða út í sumar. Það var reyndar ekki farið í neina hestaferð þó svo að það hafi alltaf staðið til. En í staðinn var bara riðið út í því stórbrotna umhverfi sem Árskógsströnd(sem sumir kalla Gullströndina......yfirleitt bara aðkomufólk samt:) hefur uppá að bjóða.
Tamningar á Nótu ganga vonum framar, fyrir þá sem vilja fylgjast með því. Hún er mjög fljót að læra og er ótrúlega róleg og yfirveguð. Hún hefur ekki sýnt neina illsku eða geðvonsku að nokkru leiti. Sumarið hefur farið í að gera hana reiðfæra og kenna henni öll helstu triksin í bókinni. Upp á síðkastið hefur markmiðið verið að að byggja upp styrk og þol fyrir átökin í vetur. Ég hef verið að teyma hana mikið. Er líka byrjaður að teyma aðra hesta á henni. Mjög gaman að teyma á 4 vetra, 3 mánaða taminni meri, sem er oft rólegri en tömdu hestarnir. Planið er að halda áfram með hana út september og gefa henni svo frí í október. Í nóvember fer hún síðan í tamingu til þeirra á Þúfum í óákveðin tíma.
Vonbrigði sumarsins voru þau að eina merin sem við ætluðum að halda var geld. Við fórum með hana Glóu, sem er undan Krissu frá Hauganesi og Hljóm frá Brún, undir Gýgjar frá Auðsholtshjáleigu. Það er því ljóst að það verður ekkert folald sem mun kastast hjá okkur næsta sumar. Þetta voru mikil vonbrigði og það er nokkuð ljóst að það verður að byggja nýjar skýjaborgir upp frá grunni næstasumar.
Verslunarmannahelgin var með nokkru hefbundnu sniði og undanfarin ár. Fjölskyldan safnast saman á Hauganesi yfir helgina, það er riðið út, farið í fótbolta, brenna og tilheyrandi, kókosbolluhlaup, svo eitthvað sé nefnt. Helgin var eins og alltaf einn af hápunktum sumarsins og heppnaðist mjög vel.
Allt útlit var fyrir að við myndum heyja á milli jóla og nýárs þetta árið. Stanslausar rigningar síðan í lok júlí gerðu það að verkum að ekki var hægt byrja að slá fyrr en 1. september sem er óvenju seint. Má segja að svartsýnustu menn hafi verið orðnir vel dimmir. Heyskapurinn gekk þó ótrúlega vel þegar náðist að byrja á honum og vorum við búin að rúlla allt 4 september. Sem var mikill léttir fyrir suma.
Nú eru göngur og réttir út um allt land. Undan farin fjölmörg ár, hafa margir úr fjölskyldunni farið vestur í Skagafjörð til að hjálpa Húseyjarbændum, að draga og reka féið heim, sem er þó nokkur fjöldi og dágóð vegalengd. Dregið verður helgina 12-13 september.
Leyfi svo einni mynd af Nótu fljóta með, en hún var tekinn í byrjun ágúst.

|