Seinna folaldið komið í heiminn:)
Skrifað af Kristinn Ingi Valsson   
Föstudagur, 03 Júlí 2009 00:16

Já þá er seinna folald sumarsins loksins komið í heiminn eftir mikla bið. Viktoría kastaði í nótt gullfallegri hryssu undan Degi frá Strandarhöfði. Hún er með langan og grannan háls og pínu litla stjörnu. Liturinn er aðeins óljós ennþá. Sennilega er hún brún, en hugsanlega gæti hún verið móálótt.. Við reiknuðum reyndar ekki með að hún mundi kasta svona snemma. Hún var hinsvegar búinn að haga sér mjög undarlega í heila viku. Búin að hanga við skurðbakka, með taglslátt, krafst og öll hugsanleg merki um að hún væri að fara að kasta. Við vorum búin að vakta hana í heila viku og vorum sannfærð á hverjum einasta morgni að nú væri komið folald. Það var svo að sjálfsögðu morguninn sem við gáfumst upp á að athuga með hana að folaldið var komið. Tókum eftir því  um 2 leytið í dag.
Læt fljóta með nokkrar myndir sem voru teknar í dag en þarna er folaldið bara nokkra klukkutíma gamalt.
Svo má fólk endilega skrifa athugasemdir, um t.d. hvað þetta er með eindæmum myndarlegt folald og jafnvel hvað þið haldið um litinn á því:)









 
Athugasemdir (1)
mrpvuDeIamFsDi
1 Þriðjudagur, 09 Febrúar 2010 08:24
FpXVZwGUVE
YemuBv loebhliubtgq, [url=http://dexsanoaegqe.com/]dexsanoaegqe[/url], [link=http://nacchkfaczgs.com/]nacchkfaczgs[/link], http://boglaqqzashx.com/

Skráðu athugasemd við fréttina

Nafn þitt:
Vefsíða þín:
Titill:
Comment: