Ný hryssa á Hauganesi
Sunnudagur, 21 Júní 2009 23:38
Í dag festu Kristinn og Íris kaup á nýrri hryssu. Sú heitir IS2005265166, Nóta frá Dalvík.

Nóta er 4 vetra ótamin hryssa undan Kormáki frá Flugumýri (8.30) og Baldursdótturinni, Spennu frá Dæli. Kormák þarf varla að kynna, en Spenna er klárhryssa með 7.9 í aðaleinkunn og 8.52 fyrir sköpulag!!
Nóta er mjög léttbyggð, háfætt og ágætlega prúð. Hún fer um á svifmiklu brokki með góðum fótaburði. Hún er hryssa sem grípur augað alveg um leið.
Hryssuna keyptu þau af Auðbirni og Ester í Hólakoti (holakot.net), en þau áttu hana í sameign með Stefáni Gunnarsyni og Guðrúnu Þorsteinsdóttur frá Dalvík.
Nóta er ótamin en bandvön. Hún fór beint niður í hesthús þar sem Kristinn mun byrja að frumtemja hana.
Reikna með að taka fleiri myndir og setja inn á morgunn.

Fyrsta folaldið
Miðvikudagur, 17 Júní 2009 21:07
Þá er fyrra folald sumarsins komið í heiminn en það er stórglæsilegur rauðblesóttur hestur undan Perlu frá Húsey og Hrafnssyninum Tý frá Skeiðháholti. Hesturinn kastaðist 15. júní og braggast vel. Folaldið er í eigu Hönnu Valdísar Hólmarsdóttur, en hún er ný orðinn 1. árs.


Firmakeppni Hrings
Fimmtudagur, 04 Júní 2009 14:41
Firmakeppni Hrings var haldin 1.júní. Þar voru hauganeshestamenn mættir á svæðið. Bjarni keppti á Neista og Dandi á Sólsker. Ágætis skráning var í mótið og heldur betur en í fyrra. Leikar fóru þannig Friðrik og Glaður frá Grund urðu í 1. sæti, Bjarni og Neisti í 2. og Dandi og Sólsker í 3. sæti. Og erum við nokkuð sáttir með það.Mynd af Fákum og fjöri
Mánudagur, 11 Maí 2009 21:54
Hér að neðan má sjá mynd sem tekin var af Bjarna og Neista á Fákum og fjöri, vígsluhátíð Top Reiter hallarinnar á Akureyri. Þeir taka sig nú bara þokkalega út þarna félagarnir. Annars er það af frétta héðan af Nesinu og stefnan er sett á þátttöku á Opna norðurlandsmótinu sem fram fer á Akureyri um helgina.

Bjarni og Neisti í 3. sæti í Svarfdælsku mótaröðinni
Föstudagur, 24 Apríl 2009 12:00
Úrslitin í Svarfdælsku mótaröðinni fóru fram á þriðjudagskvöldið. Þar voru Bjarni og Neisti í úrslitum í tölti eins og áður hefur komið fram hér á síðunni. Sýningin hjá þeim félögum gekk mjög vel og vorum við að gæla við að 1. eða 2. sætið yrði niðurstaðan. En dómararnir voru ekki alveg sammála okkur í því og enduðu þeir félagar í 3. sæti og og veður kannski að taka með í reikninginn að aðstandendur Haugneshesta eru ekki alveg hlutlausir í þessu máli. En engu að síður ágætis árangur og greinilegt að Bjarni og Neisti eru að slípast betur og betur saman og verður spennandi að sjá þegar þeir koma á útimótin þar sem plássið er aðeins meira. Sigurvegri í töltinu varð Atli Sigfússon á Stormi frá Ytri-Hofdölum og í öðru sæti varð Hulda Lilý Sigurðardóttir á Slæðu frá Möðrudal.
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

10C 
Danska tenniskonan Caroline Wozniacki átti ekki í erfiðleikum með að sigra Mariu Sharapovu frá Rússlandi í Opna bandaríska meistaramótinu í gærkvöldi og tryggja sér þannig sæti í 8 manna úrslitum.
Steinn Jóhannsson setti í gær Íslandsmet í þríþraut, eða járnkarli eins og íþróttagreinin er stundum nefnd. Steinn tók þátt í keppni í Köln í Þýskalandi og lauk þrautinni á 9 stundum, 24 mínútum og 46 sekúndum.
Dominika Cibulkova frá Slóvakíu tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis þegar hún bar sigurorð af Rússanum Svetlana Kuznetsova í tveimur settum, 7:5 og 7:6.