Myndir og gestabók

Skrifað af síðustjóra

Þá höfum við sett svolítið af nýjum myndum inn á síðuna. Aðallega er hér um að ræða myndir af þeim reiðhestum sem nú eru á húsi en þó hafa nokkrar aðrar bæst við líka. Til að skoða þessar nýju myndir getur þú smellt á tengilinn reiðhestar hér til hliðar. Við munum svo bæta inn fleiri myndum fljótlega.

Þá erum við einnig búnir að setja gestabók á síðuna og væri gaman ef gestir myndu kvitta fyrir komuna á síðuna. 

Vandræði með myndbönd

Sunnudagur, 27 Janúar 2008 12:49
Þeir gestir síðunnar sem nota Internet Explorer kunna að hafa lent í vandræðum með að skoða myndböndin okkar. Enn hefur ekki tekist að laga þessa villu en við erum að skoða málið. Þeir sem nota Firefox geta hins vegar skoðað myndböndin vandræðalaust. Til að bjarga málunum þar til lausn finnst hefur tengli verið bætt inn á myndbandasíðurnar og þar geta þeir sem lenda í vandræðum smellt til að skoða myndböndin, t.d. í Windows Media Player.

Riðið út í frostinu

Laugardagur, 12 Janúar 2008 20:44
Hann var kaldur í dag þegar við Dandi skelltum okkur á bak, en það þýðir nú ekki að væla yfir því. Þeir yrðu líklega ekki margir útreiðardagarnir yfir vetrarmánuðina ef maður færi ekki á bak í frosti. Hér til hliðar má sjá okkur á systkinunum Fiðlu og Eldjárni en þau eru bæði í þjálfun hjá okkur nú í vetur með stefnu á sýningar og keppni. Aðstæður til útreiða hafa verið með miklum ágætum síðan við tókum inn á milli jóla og nýárs og er vonandi að það haldist áfram þó varla sé von til þess að allt verði autt hjá okkur til vors, við búum jú á Íslandinu góða. En hver dagurinn og vikan sem líður við þessar aðstæður er bónus.

Hrossin tekin á hús

Skrifað af síðustjóra
Föstudagur, 28 Desember 2007 20:29
Jæja þá er komið að því! Fimmtudaginn 27. desember voru hrossin tekin inn í nýuppgert hesthúsið. Átta hross voru tekin að þessu sinni, sex reiðhestar sem allir eru komnir vel á veg í tamningu og tveir fjögurra vetra folar sem þeir Tryggvi og Hólmar eiga. Þeir munu hins vegar straldar stutt við í húsinu þar sem þeir félagar stunda sína hestamennsku annars staðar, Hólmar mun fara með Draum til Akureyrar en Tryggvi með Byr suður á Hvanneyri en Tryggvi og Bebba verða þar við nám til vors.

Framkvæmdum við hesthúsið lokið

Þá er framkvæmdum við hesthúsið lokið og allt klárt til að taka inn. Eins og áður hefur komið fram var básunum í fremra húsinu rutt út og settar þrjár rúmgóðar stíur í staðinn. Nú er sem sagt allt klárt og verða þeir hestar sem verða í þjálfun í vetur teknir inn á næstu dögum. Reiknum vð með því að vera með sjö hesta á húsi, framan af vetri alla vega, ég og Dandi með tvo hvor en Valdimar sjálfur með þrjá enda hann manna sprækastur. Að þessu sinni eru engin tryppi í frumtamningu hjá okkur hér á Nesinu en þó verða sennilega teknir inn tveir fjögurra vetra folar en þeir munu einungis stoppa fáa daga í húsinu og fara síðan til eigenda sinna, fjölskyldumeðlima sem búsettir eru á Akureyri og í Borgarfirði, en það eru þeir Hólmar og Tryggvi sem eiga þessa fola.

<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL