Svarfdælska mótaröðin

Miðvikudagur, 12 Mars 2008 23:17

Svarfdælska mótaröðin hefst á morgun með keppni í fjórgangi og tölti. Við Dandi ætlum að taka þátt að þessu sinni og hafa verið miklar pælingar síðustu daga um hvaða hross við ættum að fara með. Við erum búinir að fara nokkrar ferðir út í Hringsholt að prufa aðstæður og er aðeins misjafnt hvernig hestarnir hafa brugðist við aðstæðum þar. Þeir eru hvorki vanir reiðskemmum né heldur hringvöllum ef út í það er farið þar sem við höfum nú svo sem ekki látið mikið til okkar taka á keppnisvellinum. En nú skal sem sagt verða breyting þar á og erum við báðir skráðir í fjórgang, ég með Ósk en Dandi með Sólsker. Fiðla og Eldjárn voru einnig sterkir kandidatar en þar sem við erum bara með tveggja hesta kerru varð að velja og hafna og verða þau því heima að þessu sinni sem þýðir að þau verða hugsanlega ekki afhjúpuð á keppnisvellinum fyrr en í sumar.

 

Tryggvi og Hreimur tóku þátt í Ístölti Faxa

Mánudagur, 03 Mars 2008 21:24

Þann fyrsta mars fór Ístölt Faxa fram á Hvanneyrarengjum. Þar mættu þeir til leiks Sigtryggur Herbertsson og Hreimur frá Brún sem er ættfaðir stórs hluta af reiðhestum okkar hér á Hauganesi. Valdimar fékk Hreim í sextugsafmælisgjöf frá Matthíasi á Möðrufelli og var hann notaður til undaneldis hér fyrstu árin. Hjá okkur eru þrír nokkuð stórir árgangar undan honum og er óhætt að segja að hann hafi gefið okkur góð reiðhross. Tryggvi keypti svo Hreim árið 2006 og hefur brúkað hann síðan.

Þeir félagar tóku sem sagt þátt í umræddu ístölti á Hvanneyri og gekk nokkuð vel. Þeir komust reyndar ekki í úrslit en eins og sjá má á meðfylgjandi mynd eru þeir greinilega á réttri leið í þjálfuninni. Við munum fylgjast með þeim og flytja fréttir af frekari afrekum þeirra hér á síðunni.

Smelltu á Lesa meira hér að neðan til að sjá úrslitin úr mótinu og stærri mynd af þeim Tryggva og Hreim.

Nýju ábreiðurnar komnar

Þriðjudagur, 26 Febrúar 2008 12:42
Í gær komu í hús nýjar ábreiður sem við vorum að fjárfesta í. Eins og sjá má á myndinni hér til hliðar eru þetta afskaplega fínar ábreiður. Við ákváðum að kaupa ekki flísábreiður sem eru vinsælar í heldur fara heldur í töluvert þykkri ullarábreiður, aðallega vegna þess að kerran okkar er mjög opin að framan og næðir nokkuð um hrossin í henni. Þar sem við verðum væntanlega töluvert með hrossin á ferðinni í kerrunni nú í vetur töldum við ráðlegt að kaupa þykkar ábreiður sem veittu gott skjól og yrðu þessar fínu ábreiður frá Líflandi, sem módelið Ósk sýnir hér á myndinni til hliðar, fyrir valinu.

Æfing í Hringsholti

Sunnudagur, 24 Febrúar 2008 17:08

Við félagarnir skelltum okkur í Hringsholt í siðustu viku. Ætluðum við að skoða aðstæður þar með keppni í Svarfdælsku mótaöðina í huga. Við fórum með Eldjárn og Fiðlu með okkur. Þetta gekk að mörgu leiti vel, en það er greinilegt að hestarnir þurfa töluvert meiri æfingu þar inni ef við ætlum okkur að taka þátt í mótinu. En við stefnum að því að vera duglegir að fara næstu daga, og það mun síðan koma í ljós hverju það skilar. Það má líka segja frá því að eftir að við vorum búnir inni, þá tókum við tvo "monthringi" í kringum Hringsholt, og mér skilst að fólk sé ennþá að tala um það þarna útfá!

 

Fundur um reiðvegagerð

Sunnudagur, 17 Febrúar 2008 23:10

Í kvöld sóttum við félagarnir fund sem haldinn var af Reiðveganefnd Hrings þar sem verið var að kynna hugmyndir nefndarinnar um lagningu reiðvegar frá Dalvík til Akureyrar. Um er að ræða samstarfsverkefni Reiðveganefndar Hrings og Reiðveganefndar Arnarneshrepps en sá hluti vegarins sem þessar tvær nefndir hafa undir er frá Hörgárbrú norður að Hringsholti. Hugmyndir þessar eru enn á frumstigi og var tilgangurinn með fundinum að heyra sjónarmið hestamanna á Árskógsströnd um hvar heppilegt væri að slíkur vegur lægi.

Síðast uppfært ( Miðvikudagur, 20 Febrúar 2008 14:20 )
<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL