Tekið til kostanna
Hauganeshestafólk lét sig ekki vanta á Tekið til kostanna, sem var um síðustu helgi. Sumir tóku allan daginn og fylgdust með bæði yfirlitssýningu kynbótahrossa, og einnig sýnikennslu frá nemendum og kennurum frá Hólaskóla. Aðrir bættust síðan við um kvöldið og horfðu á "Tekið til kostana" sýninguna sjálfa. Sýningin var frábær skemmtun og vildu menn meina sem voru búnir að fara mörg ár í röð, að þetta ár hafi verið með þeim betri ef ekki það besta hingað til. Fjöldinn allur af fremstu hestum landsins kom fram á sýningunni sem var mjög fjölbreytt og skemmtileg.
Það sem stóð hinsvegar uppúr að mínu mati var atriði sem var kallað "Happ í hendi". Þar sýndi Mette Manseth og merin Happadís, samspil milli manns og hest. Það gerði þau að þvílikri snilld að annað eins hefur ekki sést í langan tíma. Atriðið byrjaði þannig að Mette sýndi hefbundnar æfingar svo sem krossgang, sniðgang, hraðabreytingar og fleira. Að því loknu tók hún beislið af og gerði allt saman aftur nema beislis laust. Þetta var að mínu mati ótrúlegt að sjá. Þess má líka geta að Happadís er ekki gömul meri sem hefur verið í þjálfun í 10 ár. Þetta er 6. vetra meri sem hefur meðal annars fengið 9,5 fyrir bæði brokk og hægt stökk. Þeir sem misstu af þessu misstu svo sannarlega af miklu.
Mér heyrðist allir hafa verið mjög sáttir með sýninguna, og ég veit að ég stefni á að fara aftur að ári.
Vel heppnuð heimsókn að Hólum
Þá erum við snúnir til baka úr heimsókn okkar að Hólum í Hjaltadal. Það var mjög gaman að sjá aðstöðuna sem búið er að koma upp við skólann og ljóst að hestafólk framtíðarinnar lærir við afskaplega góðar aðstæður. Það var ekki laust við að maður fylltist vanmáttarkennd þegar maður bar þær saman við þær aðstæður sem maður sjálfur stundar sína hestamennsku við. En það þarf meira til að ná árangri í hestamennsku en góðar aðstæður og maður reynir að hugga sig við að hugsanlega hafi maður eitthvað af því hérna á Hauganesinu.
Toni tók vel á móti okkur og kunnum við honum bestu þakkir fyrir það. Hann byrjaði á að fara með okkur í skoðunarferð um svæðið, sýndi okkur nýja stóra hesthúsið, reiðhallirnar og gömlu húsin. Það er ljóst að það væsir ekki um neinn þarna, hvorki menn né hesta.
Að skoðunarferðinni lokinni brá Toni sér svo á bak á Neista og sýndi okkur árangur vinnu vetrarins. Óhætt er að setja að við höfum verið mjög sáttir við það sem fyrir augu bar en Neisti er kominn í mjög gott stand og þjálfunin greinilega að skila góðum árangri. Nú er næsta skref að láta reyna á hann á keppnisvellinum og verður það vonandi fljótlega. Ég reyni svo að setja fleiri myndir inn undir myndaalbúm hér til hliðar mjög fljótlega.
Vetvangsferð að Hólum
Á morgun þriðjudag ætlum við að halda í vetvangsferð að Hólum í Hjaltadal. Tilgangur ferðarinnar er tvíþættur, annars vegar að kynna okkur aðstöðuna og sjá hvernig aðstæður hestamenn framtíðarinnar læra við og hins vegar að kíkja á Neista frá Hauganesi sem í þjálfun á Hólum. Anton Páll Níelsson ætlar að taka á móti okkur og leiða okkur í allan sannleikann um Hóla og einnig stöðuna á Neista þar sem hann sér um þjálfun hans.
Úrslit í Svarfdælsku mótaröðinni á morgunn
Þá er farið að styttast í úrslit í Svarfdælsku mótaröðinni. Eins og áður sagði þá eru Bjarni og Ósk í úrslitum. Við erum vongóðir fyrir mótið á morgunn. Okkur fannst Ósk eiga mikið inni í báðum umferðum í undankeppninni. Hún hefur verið í fantaformi síðustu daga og vonandi nær hún að sýna sitt rétta andlit í Hringsholti. Keppnin hefst á morgunn fimmtudaginn 17.apríl, klukkan 20.00.
Ósk komin í úrslit í Svarfdælsku
Þá er forkeppninni lokið í Svarfdælsku mótaröðinni og sluppum við Ósk inn í úrslit í fimmta sæti. Sýningin í kvöld gekk þokkalega en einkunnin var sú sama og síðast 5.40. Brokkið og yfirferðin gengu örlítið betur í kvöld en fyrir hálfum mánuði en á móti kom að við lækkuðum aðeins fyrir fet og stökk. Það sem er að þvælast mest fyrir okkur er að það dofnar rosalega yfir henni þarna inni og hún virkar áhugalaus og vantar í hana kraftinn. Nú er bara að reyna að gíra hana aðeins upp fyrir úrslitin sem fara fram 12. apríl.
10C 
Danska tenniskonan Caroline Wozniacki átti ekki í erfiðleikum með að sigra Mariu Sharapovu frá Rússlandi í Opna bandaríska meistaramótinu í gærkvöldi og tryggja sér þannig sæti í 8 manna úrslitum.
Steinn Jóhannsson setti í gær Íslandsmet í þríþraut, eða járnkarli eins og íþróttagreinin er stundum nefnd. Steinn tók þátt í keppni í Köln í Þýskalandi og lauk þrautinni á 9 stundum, 24 mínútum og 46 sekúndum.
Dominika Cibulkova frá Slóvakíu tryggði sér í dag sæti í átta manna úrslitum á opna bandaríska meistaramótinu í tennis þegar hún bar sigurorð af Rússanum Svetlana Kuznetsova í tveimur settum, 7:5 og 7:6.