Fyrsta folald sumarsins á Hauganesi komið

Þriðjudagur, 08 Júlí 2008 23:41

Jæja þá er biðin loksins á enda!!! Hér hafa menn beðið óþreyjufullir síðustu daga og vikur eftir folöldunum og loksins er það fyrsta komið. Um kvöldmatarleytið í dag, 8. júlí, kastaði Glóa rauðu merfolaldi undan Degi frá Strandarhöfði. Ef allir plúsar foreldranna smella saman ætti að geta verið mikill gæðingur hér á ferðinni en nú er bara að bíða og sjá. Hér að neðan eru myndir af þeiim mæðgum. Þær eru því miður svolítið dökkar þar sem birtuskilyrðin voru ekki sem best undir miðnættið þegar þær voru teknar en á þeim er folaldið u.þ.b. 5 klukkustunda gamalt.

 

Ekki gekk það hjá Tona og Neista í þetta skipti

Föstudagur, 20 Júní 2008 12:34

Þá er gæðingamóti Hrings og úrtöku fyrir Landsmót lokið. Anton Páll og Neisti frá Hauganesi voru meðal keppenda í A-flokki. Sýning þeirra félaga gekk vel þar til kom að skeiðinu en það gekk hins vegar ekki sem skyldi og varð niðurstaðan því fjórða sætið. Toni var þó ánægður með sýninguna ef frá er talið skeiðið og er segir að klárinn sé á réttri leið og hans tími muni koma. Nú er stefnan tekin á þau mót sem í boði verða eftir LM til að ná í keppnisreynslu fyrir hestinn.

Af úrslitunum í A-flokknum er það hins vegar að segja að Dagur frá Strandarhöfði og Stefán Friðgeirsson báru sigur úr bítum, í öðru sæti urðu Glaður frá Grund og Anton Páll og í þriðja sæti Elding frá Hauganesi og Ragnar Stefánsson en Elding er einmitt úr ræktun okkar hér, undan Von frá Hauganesi og Hreim frá Brún.

Þá gerði Anton Páll það gott í B-flokknum en þar tók hann bæði fyrsta og annað sætið með Auði frá Hofi og Örn frá Arnarstöðum. 

Gæðingakeppni og úrtaka fyrir Landsmót

Fimmtudagur, 12 Júní 2008 13:53

Á laugardaginn 14. júni fer fram gæðingakeppni og úrtaka fyrir Landsmót á vegum Hrings. Það eru 2 hestar frá Hauganesi skráðir til leiks.

Góður árangur í firmakeppni

Laugardagur, 17 Maí 2008 20:36

Firmakeppni Hrings fór fram í dag laugardaginn 17 maí eins og marg oft hefur komið fram á síðunni. Hauganeshestar og Hauganeshestamenn stóðu sig þar með miklu prýði. Það er skemst frá því að segja að ég og Bjarni komumst báðir í úrslit, ég á Sólsker og Bjarni á Eldjárni. Einnig mætti Toni á Neista frá Hauganesi og komust þeir nokkuð auðveldlega í úrslit. Auk okkar í úrslitum voru þeir Haukur Bjarnason og Sólon frá Skáney, og Atli Þór Friðriksson og Ölver frá Grund. Það voru því 3 hestar frá Hauganesi af þeim 5 sem voru í úrslitum.

Firmakeppni á morgun

Föstudagur, 16 Maí 2008 18:37

Eins og áður sagði þá er firmakeppni Hrings á morgunn laugardag. Hefst mótið klukkan 13.00. Að þessu sinni verður fámennt en góðmennt. Nokkur stór nöfn verða með t.d. Haukur Bjarnason og Sólon frá Skáney, Anton Páll Níelsson en hann var ekki búinn að ákveða hvað hann ætlaði að koma með, og að ógleymdum Þóri Áskelssyni sem mætir með Kjark frá Húsey. Bjarni er einnig skráður til leiks en hann kaus að halda aðdáendum sínum á tánum og gefa ekki upp á hvaða hesti hann ætlar að keppa á. Við hvetjum alla áhugasama til að kíkka í Hringsholt klukkan 13.00 á morgunn.

<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL