Úrslitakvöldi Svarfdælsku mótaraðarinnar frestað

Skrifað af Bjarni Valdimarsson
Miðvikudagur, 01 Apríl 2009 23:00
Af óviðráðanlegum orsökum hefur úrslitakvöldi Svarfdælsku mótaraðarinnar verið frestað  um óákveðinn tíma. Við Neisti verðum því að bíða eitthvað lengur með að reyna okkur við hina keppendurna í úrslitunum. Við reynum bara að nota tímann vel til æfinga en því miður er veður og færð að gera okkur erfitt fyrir þessa dagana en vonandi horfir það til betri vegar enda farið að nálgast vor.

Bjarni og Neisti í úrslitum Svarfdælsku mótaraðarinnar

Skrifað af síðustjóra
Föstudagur, 20 Mars 2009 21:14

img_1620Í gærkvöldi fór annað mótið í Svarfdælsku mótaröðinni fram í Hringsholti. Þar voru þeir Bjarni og Neisti mættir til leiks í töltinu til að freista þess að tryggja sér sæti í úrslitum. Þó sýningin hafi ekki gengið alveg sem skildi dugði hún þó til að tryggja úrslitasætið, einkunnin 5.50 og fjórða til fimmta sætið í gærkvöldi. Samanlagt voru þeir félagar því í þriðja sæti eftir mótin tvö og því öruggir í úrslit. Þá mætti Þórir Áskelsson einnig til leiks í gærkvöldi á hesti frá Hauganeshestum en það var Eldjárn frá Hauganesi en hann hefur verið að jafna sig eftir að hófur sprakk á honum síðasta sumar. Nokkuð vantar enn uppá formið hjá honum og kom það greinilega fram í sýningunni.

Úrslitakvöld mótaraðarinnar fer svo fram fimmtudagskvöldið 2. apríl og vonum við að þeim Bjarna og Neista gangi vel þar.

Betra seint ein aldrei

Skrifað af síðustjóra
Mánudagur, 16 Mars 2009 15:13

Þá er fyrsta keppniskvöldi í Svarfdælsku mótaröðinni afstaðið og styttist í það næsta. Tveir keppendur af Nesinu mættu til leik að þessu sinni, Bjarni fór með Neista frá Hauganesi og Kristinn með Sólsker frá Hauganesi. Keppnin í töltinu gekk ágætlega og uppskáru Bjarni og Neisti 2.- 3. sætið með einkunnina 5.33. Ágætlega gekk einnig hjá þeim Kristni og Sólsker þó einkunnin hafi kannski orðið lægri en vonir stóðu til. Í fjórgangnum gekk hins vegar ekki eins vel og borgar sig varla að tíunda það míkið meira hér.

Næsta mót verður svo fimmtudaginn 19. mars og verða Bjarni og Neisti meðal keppenda í töltinu þar. Ekki er enn ljóst hvort Kristinn og Sólsker verði meðal keppenda.

Allt gott að frétta af Nesinu

Skrifað af síðustjóra
Sunnudagur, 01 Febrúar 2009 16:32
Nú er liðinn rúmur mánuður síðan við tókum á hús hér á Nesinu og ganga bæði tamingar og þjálfun vel. Eitt frumtamningartryppi er á húsi en það er hún Óskastjarna frá Hauganesi, undan Ósk frá Haugansesi og Sólon frá Hóli. Hún fer vel af stað, er móttækileg og sterk á taugum. Hreyfingarnar gefa líka góða von auk þess sem bygging er nokkuð góð, gott bak og háls vel settur. Enn sem komið er hefur eingöngu verið unnið með hana við hendi en nú fer að koma að því að farið verði á bak og er það verulega spennandi. Við höfum einnig notað nokkuð mikinn tíma nú í vetur í liðkandi æfingar í gerðinu, mun meiri tíma en oft áður. Vonandi skilar það sér í meiri lipurð í hrossunum þegar líður að vori.

Búið að taka inn

Skrifað af Kristinn Ingi Valsson
Föstudagur, 02 Janúar 2009 17:20

Þá er allt að komast af stað aftur eftir haust hlé. Við tókum inn 27. desember, sem þótti með eindæmum heppilegur dagur. Að þessu sinni voru tekin inn 6 hross, þar af eitt sem á að fara að frumtemja, og einn sjúkling með sprunginn hóf. Eftir rólega fyrstu daga þá fer allt að fara á fullt í útreiðum og tamnningum eftir að menn ná tökum á ofáti og hátiðarhöldum sem oft fylgja þessum árstíma. Það er ljóst að það er mikil og skemmtileg vinna framundan og munum við setja inn fréttir og myndir af gangi mála.

<< Byrja < Fyrra 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Endir >>
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL